FmF
Fjölskylda með fjölskyldu, FmF, er verkefni sem miðar að því að hjálpa unglingum í Keníu í gegnum framhaldsskóla, secondary school.
Barnaskóli er ókeypis í Keníu en foreldrar þurfa hinsvegar að greiða amk 20.000 kr á ári fyrir nám í heimavistarskólum, og því þurfa nemendur á landsbyggðinni almennt að sæta. Það reynist mörgum fjölskyldum um megn og því algengt að nemendur hverfi frá námi eða þurfi að gera hlé meðan unnið er fyrir námskostnaði. Nemendur ættu að geta lokið þessu námi fyrir tvítugt en það dregst oft lengur en það.
Verkefnið gengur út á að íslensk fjölskylda tengist fjölskyldu í Keníu á þeim grundvelli að sú íslenska tekur að sér að greiða skólagjöldin með uþb 2000 kr framlagi á mánuði. Sú keníanska veitir á móti mynd af högum sínu í gegnum bréfaskriftir þeirri íslensku til lærdóms og kynni stofnast. Með útskrift nemandans úr secondary school lýkur skuldbindingu hinnar íslensku fjölskyldu.
FmF heldur utanum samskipti fjölskyldnanna, miðlar greiðslum og veitir ráðgjöf, og krefst vottorða frá skóla og kemur greiðslunum beint til þangað, fylgist með framgangi námsins og ástundun. Það er ekki ætlast til þess að framlög íslensku fjölskyldnanna séu önnur en að kosta námið og keníönsku fjölskyldunum er bannað að fara fram á aðra aðstoð.
Umsjónarmaður FmF er sr Jakob Ágúst Hjálmarsson sem starfar væntanlega í Keníu fyrsta ársfjórðung næstu ára og hefur þannig tækifæri til þess að fylgja málum eftir fyrir styrktaraðilana.
Bankareikningur FmF er 513-14-607907, kt 1704474769 og geta þeir sem vilja styrkja verkefnið almennt lagt þar inn. Þeir sem svo hafa áhuga á að taka beinan þátt í verkefninu skulu hafa samband í gegnum netfangið jagust@simnet.is
Sýn FmF er að menntun sé ein af helstu undirstöðum framfara í þróunarlöndunum og með því að hjálpa unglingum í gegnum framhaldsskóla sé þeim gefið mikilsvert tækifæri í lífinu. Hvað stúlkur varðar sérstaklega þá hefur það sýnt sig að þær sem hafa tækifæri til að vera í heimavistarskóla losna undan þrýstingi til ótímabærra barneigna og jafnframt er líklegara að þær komist hjá kynferðislegri misnotkun og umskurn.
Nánar er fjallað um aðstæður í Kenía og aðstæður fólks til náms og framfara undir ferðapistlum hér á síðunni. Vilt þú ekki hugsa málið nánar og hafa samband?
