Fátækt í Kenya (Auður)
Nú er ferðalagið okkar næstum á enda. Við hossuðumst til Nairobi á bíl 400 km á 8 klst. Það var oft þannig í bílnum að við gátum ekki talað saman fyrir látunum. Ég held þeir verði að gera eitthvað hérna í vegamálum. Áfram…

Það er alltaf töluvert spennandi þegar dvalið er í ókunnu landi, að kynnast matarhefðum innfæddra og versla inn í matinn.
Við sofnuðum mjög snemma gærkvöldi eftir heimsóknina í Mamba. Vorum þreytt eftir öll ferðalögin. Við byrjuðum daginn með kirkjuferð í Angilkönsku kirkjuna. Kirkjan var sneisafull af fólki, svörtu fólki en örfáir hvítir. Ég hafði reyndar sagt í gær, hvað það væru margir svartir hérna og þá var hlegið, þetta er jú land svartra en hvítir eru aðkomnir. Áfram…
Ég er komin heildu höldnu til Nairobi, ferðin tók 22 klst og ég var auðvitað orðin þreytt, gat ekkert sofið í vélinni þrátt fyrir að ég hefði tvo sæti. Mér fannst mjög sérstakt að lenda í Nairobi (Afríku) kl 4 að morgni og sólin að koma upp. Allt kyrrt og friðsamt . Ég held bara að mér hafi liðið eins og Karen Blixen í jörð í Afríku.
Áfram…
·