Prédikaranámskeiðið búið
Jakob Ágúst Hjálmarsson @ 06.08 5/2/10
Nemendurnir sem hér hafa verið á prédikaranámskeiði síðustu fimm vikur fara heim í dag. Námið er svona: fimm vikur á ári í fjögur ár – og sumir hafa þeir ekki lokið grunnskólanámi.
Líklega er þetta líkt og var hjá biskupunum Ísleifi Gissurarsyni og Jóni Ögmundsyni í upphafi kristni á Íslandi og um Teit Ísleifsson var sagt að hann kæmi sínum nemendum öllum til nokkurs þroska. Ætli það sé ekki okkar von hér líka. Kirkjan er ung og burðarlítil í mörgu, en kenningin virðist þó heilnæm hjá þeim í flestu. Því veldur boðunin í upphafi frá kristniboðunum sem hér hafa starfað: einföld og skír boðun um hjálpræðið í Kristi Jesú, hver hann var og hvað hann vildi mönnunum.
Þeir leggja mikla áherslu á það hér að áfengisdrykkja sé syndsamlegt athæfi og líklega verðum við að fallast á að nokkuð sé til í því. Hún er nokkuð lík hraðakstri. Það getur ýmislegt gerst á 89 km hraða og enn fleira á 120. Svo er það að vín fer afar illa með fólk hér, unnvörpum, og fyrr meir, líklega um aldir, hefur ekkert þótt athugvert þótt karlar og konur væru meira og minna undir áhrifum. Auðvelt að brugga hér. Kirkjan hefur því mörgu bjargað í þessu efni með afstöðu sinni.
Hins vegar setja þeir konur ekki á þann sess sem þeim ber. Þó eru þær sumar atkvæðamiklar í söfnuðunum. Það er heldur ekki langt síðan konur á Íslandi hafa talið sig þurfa láta til sín heyra og gera enn.
Prédikararnir snúa til síns heima. Þeir hafa að litlum efnum að hverfa. Hafa smá skika til að lifa af þar sem best lætur, og engin fá þeir launin fyrir forstöðu safnaða sinna, kannski heldur ekki full vinna. En prestarnir hafa einnig flestir lítil sem engin laun. Þar af leiðandi er lífsbjörgin í mesta basli hjá þeim. Ein prestslaun af Íslandi dugðu þeim öllum 25 og biskupinum líklega mætavel hérna. Svona er nú misskipt gæðunum.
Þeir voru kátir í gær, ég tók mynd af þeim öllum og sýndi þeim svo og þeir hlógu þessi ósköp hver að öðrum, eins og þetta væru gamanmyndir. Svo sýndi ég þeim Íslandsmyndasyrpu Mats og þeir slógu sér á lær og þótti þetta allt svo framandlegt. Af hverju býr fólkið ekki inni í landi, heldur við ströndina: Bara grjót! Haaa? Fáið þið ekkert kjöt? Jú, jú, mikil ósköp – og dagur í tvo mánuði??? Helmingurinn í skatta? Já, en við fáum fría skólagöngu og sjúkrakostnað. Það er nú aldeilis flott! …