Nýa Kenía
Jakob Ágúst Hjálmarsson @ 06.40 30/1/10
Nicholas og Rut giftu sig í desember í fyrra. Þau búa í litlu steinhúsi á dómkirkjulóðinni í Makutano og sjá um gæslu og hirðingu í staðinn. Hann er líklega eldri en hún nokkuð, á fertugsaldri en hún á þrítugsaldri. Það fer vel um þau eftir hætti í litla húsinu og þau veittu mér hinar bestu viðtökur, áttu afgang af kjúklingasúpu frá einhverju tilstandi í gær og höfðu soðið helling af hrísgrjónum og kartöflum og báru fyrir mig. Þegar við höfðum lokið við átið sem húsbóndinn iðkaði af ánægju þess manns sem ekki hefur alltaf haft nóg að bíta og brenna, sögðu þau mér af sjálfum sér.
Nicholas er einn tíu systkina frá Chesta og kom sér hingað fyrir meir en áratug. Hann hafði þá lokið unglingaskólanum og sá að ekkert var fyrir hann að gera í Chesta og vildi freista gæfunnar. Hann sinnti tilfallandi verkum um einhver missiri og gat lagt eitthvað lítilsháttar fyrir og stofnaði svo verslun með vini sínum. Það gekk en þeir ákváðu að skipta liði og voru útaf fyrir sig.
Nicholasi gekk sæmilega og sinnti kirkjustarfi hjá sveitunga sínum Samson Lokinpunaa dómkirkjupresti og nú einnig aðstoðarbiskupi. Fyrir fimm árum lokaði hann búðinni um sinn og var um árs bil á námskeiði í eyðnivörnum í Eldoret. Aftursnúinn tóka hann á ný til við versunarsstörf og sinnti því meðfram fræðslu og ráðgjöf vegna þessa skelfilega sjúkdóms og gerir enn að því ég ætla.
Hann er lágvaxinn pókotmaður, ljósari á hörund en þeir flestir, ákaflega hláturmildur og tístir í honum og skríkir strákslega. Hann er greindur og metnaðarfullur og lýsir af heilbrigðri sjálfsvitund.
Ruth er Luio, upprunnin austan við Elgonfjallið mikla. Hún ólst upp með fjölskyldu sinni sem hvítasunnumanneskja þar til hún hafði lokið unglingaskólanum. Þá hafði hún í leyfum prófað að búa hjá bróður sínum í Makutano og líkaði það vel. Hún kynntist Chestafólkinu í Makutano og fór að sækja Dómkirkjuna og taka þátt í söngstarfi þar.
Ruth sótti svo tölvunámskeið í eitt missiri í Makutano og svo námskeið fyrir forskólaleiðbeinendur í Eldoret og starfar nú sem slíkur skammt heiman frá sér. Í seinnipartinn er hún oftast í búðinni þeirra.
Ég kynntist Rut fyrst hjá Solomon vini mínum, sóknarpresti í Kapkoris, vinasöfnuði Akrureyrarkirkju. Hún bauð strax af sér góðan þokka, hávaxin með fallegt bros og daginn eftir kom svo í ljós að hún hefur einstaklega góða söngrödd er örugg í söngnum og kann margt.
Myndir úr brúðkaupi þeirra sýna að öllu hefur verið til tjaldað og brúðurin í hvítu með kórónu og brúðguminn í ljósgráum fötum. Langt að komið fjölmenni var samankomið og brúðartertur á statívi og önnur matföng.
Draumur þeirra hjóna er að komast yfir lóð í Makutano og geta byggt yfir sig. Það mun þó seint ganga að óbreyttum hætti því ekki gefur verslunin mikið af sér. Ég kom í búðina þeirra og hún er eins og með sama vöruúrval og margar aðrar hér. Ég óskaði þeim andvökunótta um sinn meðan þau væru að finna eitthvað til að hafa á boðstólum sem aðrir hefðu ekki og drægi viðskiptavini að búðinni þeirra öðrum fremur.
Þau Nicholas og Ruth eru fólk hins nýja Kenía sem ekki byggir að jarðeign og búskap. Það er margt komið undir því að þeim og öðrum sem þeim vegni vel og komi undir sig fótunum.