Drengurinn frá Baringo
Jakob Ágúst Hjálmarsson @ 06.41 30/1/10
Christopher kom á pallinn hjá mér í dag (27.1.10) og var að segja mér af sér og sínum, seldi mér tónlistarvideó. Ég held að hann sé einn af nútímamönnunum í héraðinu því hann seldi fjórar af fimm kúm sem hann átti og keypti mótorhjól. Nú ekur hann á því leiguakstur milli Cheparería þar sem hann á heima og Makutano þar sem öll verslunin er.
Dag nokkurn rekst hann á unglingspilt sem biður hann um að gefa sér 20 skildinga fyrir mat. Hann talar við hann um sinn og ákveður svo að taka hann með sér heim og gefa honum mat og húsaskjól. Ástæðan var einmitt sagan sem hann sagði honum.
Í Baringo búa í bland Pókotmenn og Marakwetmenn og semur ekki of vel þó skyldir séu. Ekki fyrir löngu var með þeim ófriður með mannvígum sem Moi forseti setti niður á eftirminnilegan hátt með sáttargjörð. Enn eru smáskærur með þeim, nautgripaþjófnaðir aðallega og fyrir kemur að menn týna lífi við það í sókn og vörn.
Pilturinn sagði Christopher að pabbi sinn hefði farist, þá fyrir þremur árum og mamma sín væri ekki lengur sjálfrar sín og dveldi hjá öðrum. Hann var því á eigin vegum. Hann komst til Lomut sem er vestan við Baringo og austan við Chesta sem er norð-vestan við Cherengani fjöllin sem fylla Pókot að miklu leyti austan- og norðanvert. Þar hitti hann flutningabílstjóra sem hann bað leyfa sér að fljóta með eitthvert þangað sem góðs væri að vænta. Hann lét hann af í Cheparería og þar fundust þeir Christopher.
Nú, Christopher sá að drengurinn var viljugur að vinna og vann jafnvel kvennaverk, að mjólka kýrnar og bera vatn og við heim. Hann vildi því gera eitthvað fyrir pilt og kom honum í skóla því hann hafði ekki enn lokið skyldunámi. Hann stóð sig líka vel þar, las vel lexíur heima, enda hefur hann minna að gera núna eftir að Christopher seldi kýrnar fjórar.
Christopher er núna að hugsa hvað verði um þennan unga mann, enn eiginlega ungling sem ekki er líklegur að fá og halda vinnu. Hann telur nauðsynlegt að hann fái einhverja frekari fræðslu svo hann geti bjargað sér í lífinu, en til þess eru engin efni. Hann verður því aftur á reki á næsta ári þegar hann lýkur skyldunáminu.