jakob.annáll.is

AnnállAndleg fræðiAuðurFerðapistlarFjölskylda með fjölskylduHugleiðingarParish to parishPostillaSögurUm þessa síðu

« Safnaðartengsl Dómkirkna · Heim · Nýa Kenía »

Byrjaður að kenna

Jakob Ágúst Hjálmarsson @ 06.37 30/1/10

Það eru nú svosem engin ósköp, fimmtán tímar í Filippíbréfinu sem er ekk nema fjórir kaflar og ekki snúið bréf. Ég sé mér leika á borði að hraða yfirferðinni og nota svo tímann til að hjálpa þeim að koma gleggri skipan á helgihaldið. Það kann ég og þess óskar kirkjustjórnin.  Mér líst líka vel á nemendurna, vel á þriðja tug karla á ýmsum aldri.

Það verður að segjast að kristniboðar af starfssvæði kirkjuordinanzíu Kristjáns IV, ss Dk, No, Ísl, koma ekki úr umhverfi þar sem mikil hamingja ríkir með hefðbundna messugjörð, og þess sér merki hér á kristniboðsakrinum.  Jafnframt liggur ekki allt ljóst fyrir í byrjun og ungum söfnuðum er það stórvirki að koma henni á. Þannig getum við sagt að nú séu hinir grónari söfnuðir komnir í þörf fyrir að helgihaldið haldi betur utanum verk safnaðarins í tilbeiðslunni. Hún þarf að sjá til þess að mikilvægustu atriðin verði ekki vanrækt.

Okkur á Íslandi varð á í því efni á liðinni öld að vanrækja altarisakramentið og bænargjörðina og kirkjan ekki búin að jafna sig á því enn. Hér er það óregluleiki og spontan uppákomur sem valda því að sumu verður ekki til skila komið og prestafæð hefur valdið því að þau hafa ekki haft allt gagn af altarissakramentinu. Og núna þegar prestum hefur fjölgað svo verulega þá komast þeir ekki að með það sem svo mikilvægt er, ma vegna vankunnáttu prédikaranna og sjálfræðis einstakra safnaðarmeðlima.

Ég átti langt samtal við Vilhjálm Lopeta biskup í gær þar sem hann hvatti mig til að vera þeim sem mest innan handar í þessu efni. Hann vildi ekki að fólkið hans færi þess á mis sem Kristur hefur heitið okkur og að kirkjan hans yrði sérleg, þannig að fólkið kannist ekki við sig í almennri kristinni messu hvert sem það kynni að rata. Hann sem aðrir taka mið af því að hluti lúthersku kirkjunnar hér er oðrinn til fyrir kristniboð Svía og Finna þar sem markvisst var unnið það því að kenna almenna sígilda helgisiði. Engu að síður ber að nefna það hér að kirkjan í Pókot á sína styrkleika sem einmitt má rekja til boðunar þeirra kristniboða sem hér hafa verið. Þar má nefna áhugann á menntun og uppbyggingu innviða samfélagsins og þar með biblíuáhuga og þekkingu.

Eftir helgina verður hægt að segja frá brúðkaupi í Lelan, uppi í Cherenganifjöllum.

url: http://jakob.annall.is/2010-01-30/byrjadur-ad-kenna/

© jakob.annáll.is · Færslur · Ummæli