Lagt í hann á ný
Jakob Ágúst Hjálmarsson @ 08.18 2/1/09
Aftur nálgast brottför til Afríku. Í mörg horn hefur verið að líta til undirbúnings. Nú reynir meir á en seinast því efst á verkefnalistanum er kennsla á námskeiði fyrir prédikara sem hafa verið valdir til þess að undirbúast fyrir prestsvígslu.
Þeir eru á tveimur 10 vikna námskeiðum í vetur og á því seinna á ég að kenna þeim það sem við köllum embættisgerð eða helgisiði, að búa sig andlega undir verkefni sín og að staðfesta þá í kenningunni. Mér þykir ábyrgð mín mikil því að þeim árangri er stefnt að fjölga almennum prestum í Pokot úr fimm í amk tólf. Sömuleiðis mun ég kenna tilvonandi prédikurum Gamlatestamentissögu eða Ísraelssögu eins og það var kallaði í Deildinni á mínum dögum.
Í undirbúningnum hefur falist Swahilinám og hefur mér þótt það alveg nógu snúið og ef ekki hefði komið til þolinmæði kennarans, sr Ragnars Gunnarssonar framkvæmdastjóra Kristniboðssambandsins, og samfélag við skólasystur á námskeiðinu, fyrrum sóknarbarn úr Súðavík úr fjölmennri og mikilli vinafjölskyldu þar, Ásdísar Kristjansdóttur sjúkraþjálfara, þá hefði námið allt verið sýnu dapurlegra fyrir okkur báða.
Fyrsta verkefni í Kenía verður hálfsmánaðar “crash” námskeið í Swahili og ætlar Ásdís að fylgja mér á það og kíkja aðeins til Pokot í leiðinni. Mér er mikil stoð í þessu. Ég ber þó aðeins hóflegar vonir um að “crashið” verði annað en gjaldþrot í nýlegum skilningi þess orðs, afsaka mig þá bara eins og hinir: Enginn varaði mig við því að ég stæði ekki undir þessu!
Ég er auðvitað þegar farinn að sakna ástvina minna, en hugga mig við að Auður mín ætlar sér að koma til mín í mars og vera þar til ég áætlun heim 16. apríl. En ég hlakka líka til að komast í bland við Pokotmenn á ný í fallega og hlýja landinu þeirra.
Ég vonast eftir að hafa greiðara netsamband en í fyrra og stefni því að tíðari skrifum inn á þetta svæði. Ég næ pósti á jakob.hjalmarsson@gmail.com og skrifið endilega, og má ég ekki nefna aftur að ég rek ofurlitla “hjálparstofnun” og þigg með þökkum viðtakenda innlegg á reikning 513-14-607907 og hef kennitöluna 170447-4769. Er rangt af mér að álykta að þeir sem rétta að mér tóma hönd hitti fyrir í einhverjum skilningi einnig ykkur sem þekkið mig?
Mest þarfnast ég sjálfur fyrirbæna ykkar því ég er þrátt fyrir allt lítill karl í stóru verkefni langt í burtu.
Ég legg í hann 5. janúar í bítið ef Guð lofar.