jakob.annáll.is

AnnállAndleg fræðiAuðurFerðapistlarFjölskylda með fjölskylduHugleiðingarParish to parishPostillaSögurUm þessa síðu

« Fort Jesus 12.3.2007 · Heim · Englasöngurinn »

Velkomin á síðuna mína

Jakob Ágúst Hjálmarsson @ 16.48 14/12/07

Ég áforma að leggja fram hér á síðunni ánnál í formi hugleiðinga um það sem ég upplifi, efni sem mig langar að deila með öðrum og viðhorf um málefni kirkju og þjóðlífs.
Ég er á förum til Afríku til að kenna prédikurum í Pókot í Keníu í byrjun árs 2008 og langar til að leyfa ykkur að fylgjast svolítið mðe því. Hér annars staðar á síðunni eru hliðstæð skrif frá því í Jan-Feb 2007 úr ferð um Eþíópíu og Keníu.
Ég fæst við skriftir og sumt af því er þannig að sjálfsagt er að leggja það út til skoðunar og gagns. Það er sumt andleg fræði líkt og kver mitt Leyndardómur trúarinnar, bók um altarissakramentið sem kom út árið 2000. Fleira kann að koma í ljós.
Þá skrifa ég nú um stundir einnig blogg á http://jakob.blog.is um það sem er að gerast í þjóðlífinu.
Ég vona að þið hafið gagn og gaman af þessu og fylgist með hvernig þetta þróast.

url: http://jakob.annall.is/2007-12-14/velkomin-a-siduna-mina/


© jakob.annáll.is · Færslur · Ummæli